Alda Agnes

Svipan

30.06.2008 02:37:28 / norma

Unfockingbílivibúll........

Jáds, gamla konan hlunkaðist 10 km í Óshlíðarhlaupinu í gær. Ætlaði sko alls ekki að hlaupa meira en 4 km, en einn ofurhlaupari taldi að ALLIR sem eitthvað hafa hlaupið á ævinni ættu skilyrðislaust að hlaupa lengra en 4 km. Held að það sé einmitt ástæða þess að svo fáir hlupu 4 km, fyrrgreindur hlaupari einfaldlega píndi þá í annað hvort 10 eða 21 km.......:lol:
EN ég hljóp þetta á 1.00.31 sem er ásættanlegt miðað við formið, kílóin ( 10 kíló í plús frá því í haust...auds...8)) og andlegt ástand konunnar...en það verður að segjast að ég hef eytt deginum í dag í að raða í mig kolvetnum, svo illa haldinn var skrokkurinn eftir gærdaginn.
Hinsvegar er þessu fjandans kílóum sagt stríð á hendur, formið boðið velkomið og horfið fitness eftirlýst á staðnum.....:$
until nextime........
Svipan....

» 2 hafa sagt sína skoðun

15.06.2008 19:32:04 / norma

I´m back.......

Jamm, ótrúlegt en satt, en ég var að átta mig á því að síðan er ekki staðbundin.....virkar semsagt líka frá Ísafirði.
..EN fyrir þá sem ekki vita, þá fluttum við á Ísafjörð fyrir jólin ( ekki villa, jólin voru það og ekkert bloggað síðan)..og konan rétt að komast á réttan kjöl með aðlögun, þar á meðal blogg.
Hreyfing hefur semsagt ekki verið stunduð frá því síðastliðið haust, eins og alltof litlar gallarbuxur konunar eru til vitnis um. 10 kíló stokkin á , sem illa gengur að reka á brott. Verð þó að fara að gera það til og ákvað að reyna fyrir mér á æfingum með Riddurum Rósu.
Hef farið á eina æfingu sem gekk vægast sagt ekki vel, hélt greinilega að ég væri betri en ég er, en læt það ekki stoppa mig. Næsta æfing er á morgun (hef þó hlaupið ein i millitíðinni) en ég held að ég hafi gott af að hlaupa með fleirum.
Verður bara að segjast eins og er að maður er bara búinn að vera lost án Víkingasveitarinnar...en það er samt engin afsökun. Nú er þessum helv.....kílóum sagt formlega stríð á hendur...
until next...
Tata.....Svipan  (það sem eftir er af henni í bili)...hehe


» 4 hafa sagt sína skoðun

27.12.2007 11:58:06 / norma

THE....

http://www.dramadrottning.com/konnun/img/tinna_konnun.jpg">

Þú ert vel steikt dramadrottning.




Ef dramadrottningar væru hamborgarar sem fengjust „rare“, „medium rare“, „medium“ og „well done“ værir þú „well done“. Jafnvel svo vel steikt að erfitt væri að sjá muninn á þér og skósóla. En velsteikta dramadrottningin kærir sig ekki um óvæntar uppákomur eins og matareitrun. Hún vill að hlutirnir séu fyrirsjáanlegir og skipulagðir. Hún bleytir því einfaldlega upp í þurrum borgaranum með fullt af kokteilsósu.

Miklir leiðtogahæfileikar búa í vel steiktu dramadrottningunni. Hún er mjög yfirveguð og rökföst en einnig þrjósk.

Í raun verður nánast aldrei dramatískra eiginleika vart í fari vel steiktu dramadrottningarinnar. Ætli þeir hafi ekki drepist við steikingu. Það er þó tvennt sem getur komið hinni vel steiktu úr jafnvægi. Annars vegar hrár fiskur. Hins vegar þátturinn Frægir í form. Hún er enn að leita að fræga fólkinu í þættinum.

» 1 hafa sagt sína skoðun

12.11.2007 16:08:57 / norma

Tröll hvað....

Ég er svona tröll........... 
Stjórnmálaþurs
Þú ert vanaföst, tilfinningarík félagsvera.
Í margmenni á stjórnmálaþursinn oftar en ekki orðið. Ef einhver hyggst grípa fram í fyrir honum talar hann bara hærra - og það virkar. Hann hefur sterkar skoðanir á flestu, hvort sem um er að ræða fjárlagahalla ríkisins eða það hvort SS eða Goða pylsur eru betri, og gerir hvað hann getur til að þröngva þeim upp á aðra. Stjórnmálaþursinn þarf að passa sig þegar hann er í nærveru þeirra sem eru ósammála honum því blóðþrýstingurinn á það til að rjúka upp.

Stjórnmálaþursinn vantar ekki nýja skó fyrr en það er komið gat á þá gömlu... sem skósmiðurinn segist ekki geta gert við. Stjórnmálaþursinn veit hvar Guðsteinn er með verslun.

» 6 hafa sagt sína skoðun

10.10.2007 08:42:06 / norma

Andrea Bocelli.........jeje

jáhá, er semsagt búin að versla mér miða (með smá aðstoð góðrar vinkonu) á tónleikana með Andra Bocelli þann 31. n.k.

Verð á 22. bekk og sæti 29....hehe...sem hlýtur sko bara að vera ágætt, ekkrert annað. Óska hér með eftir einhverjum sem ætlar og vill joina mig, því að flestir mínir vinir hafa ekki áhuga á þesskonar tónlist...skrítið;);)

Þangað til er það svo þannig að í kvöld ætlum við að flykkjast til Bolungarvíkur og hlusta á Gúuna okkar syngja í "bandið hans Bubba" og auðvitað rústar hún keppninni, ekkert annað:haha:

 

nenni ekki meiru í bili, tata


» 3 hafa sagt sína skoðun

19.09.2007 08:30:17 / norma

Hmhm....

Hef svo sem ekki hugmynd hvað ég á að setja hérna inn. Átti annars ágæta helgi í borg óttans, en allt tekur enda og heim þurfti konan til daglegra verkefna eins og þar stendur.

Veit ekki hvort maður á að skrifa það á "aldurinn"....nei.....eða eitthvað annað, að konan yfirgaf annars ágætis samkvæmi hjá Dísunni kl 23.00 á laugardagskvöldið.....jáds, ég er alls ekki að grínast eða gantast, 23.00 var hún heillin þegar mamabear kom sér í fletið. Lá svo sem alveg við að ég svæfi allann veturinn, svo þreytt var konan, en ég hundskaðist nú framúr um hádegisbil og kom mér af stað heim á leið.8)

Á því herrans heimilil Aðalstræti 12 ( The station) er fjórhjóls nú beðið með eftirvæntingu, en frumburðurinn hefur safnað sér dósum frá 3ja ára aldri með það í huga að kaupa sér annaðhvort fjórhjól eða crossara, já eða jafnvel snjósleða í barnastærð.

Nú er semsagt komið að því, peyinn nánast búinn að safna sér fyrir tryllitækinu og rétta græjan fundin. Hún er af Polaris gerð og að mér skilst, hið besta eintak. Síðan ætlum við foreldrarnir að gefa honum í jóla- og afmælisgjöf það sem uppá vantar, ásamt því að hann þarf út með ruslið og aðstoða móður sína í ALLANN VETUR við hvað sem til fellur áður en við verðum kvitt....:klikk: Ég veit, besta mamman....:haha:

ATH. um helgina næstu, á laugardaginn 22. sept verður rýmingarútsala á Stöðinni á Pólska stellinu. Endilega látið alla vita, frábær afsláttur, allt á að seljast...Koma svo;);)

 


» 2 hafa sagt sína skoðun

12.09.2007 08:42:20 / norma

Stolið og stílfært frá Lárunni.......

(x) drukkið áfengi
( ) klesst bíl vinar/vinkonu
( ) stolið bíl
(x) verið sagt upp af kærasta/kærustu
() verið rekin/n (bara úr skólanum)
(x) lent í slagsmálum
(x) læðst út meðan þú bjóst ennþá heima hjá foreldrunum(hehe oft)
(x) haft tilfinningar til einhvers sem endurgalt þær ekki  (Ójá ójá;)
( ) verið handtekin/n
( ) farið á blint stefnumót
(x) logið að vini/vinkonu
(x) skrópað í skólanum
(x ) horft á einhvern deyja
(x ) farið til Canada
( x) farið til Mexico
(x) ferðast í flugvél
() kveikt í þér viljandi
( ) borðað sushi
( ) farið á sjóskíði
(x) farið á skíði
( ) hitt einhvern sem þú kynntist á internetinu
(x) farið á tónleika
(x) tekið verkjalyf
(x) elskar einhvern eða saknar einhvers akkurat núna
(x) legið á bakinu úti og horft á skýin
(x) búið til snjóengil
(x) haldið kaffiboð
(x) flogið flugdreka
(x) byggt sandkastala
(x) hoppað í pollum
( x) farið í "tískuleik" (hverja helgi)

) hoppað í laufblaðahrúgu
(x) rennt þér á sleða 
(x) svindlað í leik
(x) verið einmana
(x) sofnað í vinnunni/skólanum  (jamm, Bifröstin mar)
(x ) notað falsað skilríki (sorry systir)
(x) horft á sólarlagið
(x) fundið jarðskjálfta
() sofið undir berum himni
(x) verið kitluð/kitlaður
( ) verið rænd/rændur
(x) verið misskilin/n  (story of my life)
() klappað hreindýri/geit/kengúru
(x ) farið yfir á rauðu ljósi/virt stöðvunaskyldu að vettugi
() verið rekin/n eða vísað úr skóla
(x) lent í bílslysi -eða bara árekstri
() verið með spangir/góm
(x) liðið eins og þú passaðir ekki inn í.(ekki spurning, oft)
(x ) dansað í tunglskininu  ( já við “Fjöllin hafa vakað” hér um árið...hehe)
() verið vitni að glæp
(x) efast um að hjartað segði þér rétt til (segir það manni til, ruglar það ekki bara!!! Mar spyr sig)
( ) verið gagntekin/n af post-it miðum (þið vitið - þessum gulu)
(x) leikið þér berfætt/ur í drullunni
(x) verið týnd/ur
(x) synt í sjónum
(x )fundist þú vera að deyja
(x) grátið þig í svefn
(x) farið í löggu og bófa leik
(x) litað nýlega með vaxlitum
(x) sungið í karaókí    (Ójá.......)
(x) gert eitthvað sem þú lofaðir sjálfri/sjálfum þér að gera ekki  (allt of oft!!)
(x) hringt símahrekk
(x) hlegið þannig að gosið frussaðist út um nefið á þér
(x) stungið út tungunni til að ná snjókorni
( x) dansað í rigningunni
() skrifað bréf til jólasveinsins
( ) verið kysst/ur undir mistilteini
(x) horft á sólarupprásina með einhverjum sem þér þykir vænt um
(x) blásið sápukúlur
() kveikt bál á ströndinni
(x) farið á rúlluskauta/línuskauta
(x) hefur einhver óska þinna ræst
( ) farið í fallhlífastökk
( ) hefur einhver haldið óvænt boð fyrir þig
(x) pissað úti


» 1 hafa sagt sína skoðun

12.09.2007 08:18:59 / norma

Pressa Pressa....

Jamm, Takmælirinn er farinn að skamma mig fyrir bloggleysi, og þar sem ég hef nú verið skömmuð eða í mér nöldrað útaf ótrúlegustu hlutum undanfarið þá varð ég við þeirri bón offcors;);)

EN ég hef nú bara svo fjári lítið að segja, ekki nema kannski að mig langar að skreppa á Fusion-heilsuhátið í World-Class Laugum. Þessi hátíð er til að kynna allt það nýjasta í líkamsræktar/heilsu-geiranum, fullt af erlendum kennurum ásamt landsliðinu okkar í bransanum. Alltaf gott að bæta á sig blómum og læra eitthvað nýtt.:haha:

Víkingarnir mínir auðvitað komnir á skrið, tvískipt prógramm, sem gengur með ágætum að ég held, nema hvað "sumir" nýliðarnir veigra sér við að fá undirritaða til sín, halda víst að mínir tímar séu "töffaðri" en drekans, sem er náttlega bara bull og vitleysa. En svo sem alltaf gaman að vera álitin töff og kannski þessvegna sem "svipunafnið" á sér tilvist yfir höfuð...hehe:klikk:

Vitiði, að ég er bara alls ekki í blogggír, bara ekki í neinum gír, só öntil nekst...hehe

Svipan


» 0 hafa sagt sína skoðun

22.08.2007 08:28:08 / norma

1/2 maraþon......afgreitt......

Svei mér þá ef konan tæklaði ekki bara hálft Reykjavíkurmaraþon á helginni. Segi svo sem ekki að það hafi verið neitt auðvelt, en samt betra en ég hélt. Ég átti nú ekkert fyrirfram von á að klára það en það tókst :D:D

Hljóp þennan 21 km á 2.17.07 sem er rúmum 2 mínútum lakari tími en ég stefndi á, EN ég er svo ánægð með að hafa klárað þetta að það kemur ekki að sök. Varð sem sagt í 953 sæti......múhahaha, en það er snilld bara;)

Ætlum svo galvaskar með eina sveit í þríþrautina sem haldin verður hérna fyrir vestan þann 1. sept. Held að það sé mjög skemmtileg keppni en hún byrjar á 700 m sundi í sundlaug Bolungarvíkur, síðan eru hjólaðir 17 km frá Bolungarvík til Ísafjarðar og svo eru hlaupnir 7 km frá Landsbankanum og inní Holtahverfi og til baka.

Það er bæði hægt að tækla þetta í einstaklingskeppni, sem er mjög freistandi, og líka sem sveitakeppni. Ég á nú frekar von á að við förum sem sveit, það er auðvitað bæði auðveldara og líka skemmtilegra reikna ég með.

Er búin að undirstinga Diddu Svenna í sundið, Raggan hjólar og ég hleyp, held að þetta sé flott team og verður örugglega frábær skemmtun :haha:

Aníhú, nóg við að vera framundan eins og alltaf og Víkingarnir að fara af stað....GEGGJAÐ:klikk:


» 4 hafa sagt sína skoðun

16.08.2007 08:11:56 / norma

Kvíðaröskunarkeppnisfælnikast.....eða eitthvað þaðan af verra.....

Sit hérna skjálfandi í ofangreindu kasti og reyni að kryfja hvað það er nákvæmlega við smá hlaupakeppni sem fær mann til að líða svona. Þetta er reyndar sama tilfinning og hrjáði mig þegar ég tók blessuð prófin mín á Bifröst, og versnar bara með aldrinum.....þó að aldur sé afstæður. Allavega, þá er ég í huganum búin að hætta svona tvöhunduð sinnum við að tækla Reykjavíkurmaraþonið, sem hefst eftir um það bil tvo sólarhringa, úff!! EN....einhverra hluta vegna hætti ég alltaf við að hætta við, kannski vegna þess að stefnt hefur verið að þessu í allt sumar og þokkalega stíft æft, þrátt fyrir að konan hafi aldrei hlaupið svona langt í einu!! Er ekki bara best að fyrsta sinnið verði þá bara í blessaðri keppninni....;)

Ég sá það á netinu að hlaupið verður ræst ( 21 km) kl 9.10 á laugardagsmorgun og tímatöku hætt kl 15.00....:lol::lol:  Þannig að ég hef strangt til tekið 6 klst til að klára þetta...hehe.. þó æskilegt sé nú að ná þessu á um það bil 2 klst. (vona ég).

Eníhú.....þá þarf ég að ná flugvélinni aftur heim seinnipart laugardags, þannig að mar verður bara að spýta í lófana.

Að öðru, auglýsing Víkingasveitarinnar fór út í gær, borin í öll hús og hengd upp í samverustöðum bæjarins. 3 skráðir already, sem er bara næs, þannig að það eiga um það bil 30 eftir að skrá sig enn miðað við mínar áætlanir:haha::haha:

Mig hlakkar alveg hrikalega til að byrja á þessu, orðin frekar leið á því að æfa ALEIN....en það hef ég nánast gert frá því í vor þegar víkingarnir mínir tóku að sér það mission að ná einhverju á sig í sumar, eingöngu til að hafa ástæðu til að koma í haust og ná því aftur af sér......:$

Yndislegar, ekkert annað.

Og koma svo Víkingar og nýliðar sérstaklega velkomnir:haha:


» 6 hafa sagt sína skoðun

07.08.2007 08:20:44 / norma

Evrópumeistarakeppni í mýrarbolta !!!

Jamm, Víkingasveitin ógurlega sem telur sig, eða öllu heldur veit að hún getur allt!!, tók sem sagt þátt í evrópumeistarkeppni í mýrarbolta sem fram fór á Ísafirði um helgina.

Í sem fæstum orðum: þetta var alveg stórkostlegt, erfitt auðvitað, en frábærlega skemmtilegt. Liðið er meira og minna skaddað og lemstrað eftir átökin, og meira segja sú sem hér tjáir sig er klóruð og blá og marin sem gerist nú afar sjaldan skal ég segja ykkur.

Við fengum okkur langferðabíl ( enga rútu sko) og flykktumt með börn og buru með okkur norður yfir heiðar til að taka þátt. Komumst svo auðvitað í undanúrslit á sunnudeginum, eins og okkur einum er lagið;);), og lentum í 4. sæti eftir bráðabana, gætið að því.

Svo verð ég að minnast á allan þann frábæra stuðning sem við fengum, bæði frá börnum, mökum og sveitungum okkar, sem komu sérstaklega á svæðið til að hvetja okkur og styðja (ekki dró blíðan fólkið að, svo mikið er víst). Þetta þótti meira að segja svo merkilegt að um þetta var talað á mótsstað hvað Þingeyringar ættu mikinn stuðning. En svona er þetta bara á Þingeyri og hefur alltaf verið frá því að ég kom þangað fyrst. Ef fólk er að taka þátt í e-h viðburðum, íþróttum eða nánast hverju sem er, þá styðja Þingeyringar sitt fólk, það er bara þannig.:D:D

Að öllum ólöstuðum verð ég þó að minnast á Jimma, en þetta er í fyrsta sinn sem ég sé einn mann ná að framkalla samskonar stuðning með öllum tækum ráðum og tæki um það bil 10.000 manns á Wembley að framkalla, ótrúlegur maðurinn og frábær stuðningur:haha:

Best að stoppa við hérna í bili, en tek þó fram við þá sem lesa og tilheyra Víkingasveitinni, að það eru öll ferðalög bönnuð um næstu verslunarmannahelgi. Skilið :klikk::klikk:


» 4 hafa sagt sína skoðun

24.07.2007 08:28:24 / norma

Gargandi snilld!

Það er aldeilis hellingur og hrúga búin að ganga á síðan síðast. Vesturgatan var sem sagt hlaupin um helgina og konan hljóp hana hálfa eða uþb 11,5 km. Þetta var töff og skemmtileg leið og ég lenti í 4. sæti sem er svo sem í lagi ef ég hefði ekki verið í 2. sæti fyrstu 7-8 km.......:cry:...en Keldudalsbrekkan hafði af mér pallinn!! Slæmt fyrir svona keppnisfólk eins og mig, en maður verður bara að taka því að vera ekki betri en þetta. Ingibjörg mín beið mín svo við marklínuna með rós handa mér, yndislegust, engin spurning.

Ennþá er stefnt á hálft Reykjavíkurmaraþon þann 18. ágúst, en til að það megi verða, þarf þessi kona að fara að æfa lengri vegalengdir, því það er víst rétt sem þjálfarinn minn benti mér á að það er ekki gott fyrir langhlaupara að stunda lyftingar. Stórir vöðvar og þeirra þyngd er víst ekki æskilegur kostur í hlaupum....:S:S....EN ég er ekki langhlaupari, heldur vil ég vera í alhliða góðu formi og mun því halda áfram að hlaupa og lyfta, sem gerir allar maraþonhugleiðingar mun flóknari......hehe.

Í fyrrakvöld fórum við Kata (á Nesi) á kajak. Þvílik snilld, ætluðum aftur í gær en ég fékk því frestað þar til í kvöld. Við vorum í eina 2 klukkutíma, rérum út að Þingeyri frá Nesi og aftur innfyrir Skeiði og til baka. Veðrið var yndislegt, lygna og maður naut náttúrunnar og samverunnar í botn. Mikið rætt og við skemmtum okkur konunglega vinkonurnar.

Spurning hvort maður er alveg fallin fyrir þessu sporti líka:$

Búið að bjóða mér til láns golfsett til að prufa, long time no do, en ég held bara að ég hafi ekki tíma til að falla í fleiri áhugamál, svei mér þá. Svo styttist óðum í vitjunartíma Víkingasveitarinnar, en við ætlum að byrja um svipað leyti og skólarnir.

Verslunarmannahelgin verður að öllum líkindum tækluð heimavið, en stefnan hafði verið tekin á Sigló, er bara varla að nenna því að keyra alla leið norður, kemur þó allt í ljós von bráðar.

bless að sinni elskurnar:haha:


» 5 hafa sagt sína skoðun

12.07.2007 08:13:40 / norma

Long time no blog...

Hef bara ekki gefið mér tíma til að blogga hérna leeeennnngi...en ég var í sumarfríi og nóg að gera síðan, svo sem eins og alltaf. Höfuðverkurinn fram undan að ná af sér kílóunum sem laumuðu sér á í sumarfríinu, en þeim er semsagt sagt stríð á hendur, báðum:(:(

Fór í útskriftarferð með Bifrestingum, fámennt en góðmennt, og alveg hrikalega gaman. Fórum í siglingu í Karabíska með stærsta liner sem siglir í dag, Liberty of the seas. Mögnuð ferð, fórum í land í fjórum löndum, þar sem konan skellti sér á Sjókött (jetski), fjórhjól og í köfun. Algjörlega magnað að kafa, en staðurinn sem við köfuðum á heitir Paradísarrif og er talinn þriðji fallegasti köfunarstaður í heimi, og viti menn, ég trúi þvi bara alveg. Konan fór niður á 40 fet (13-14 metra dýpi) og líkaði bara vel.

Kom náttlega heim sólbrún og sælleg, afslöppuð sem aldrei fyrr og í góðum gír fyrir það sem koma skal.

Nú er stefnan tekið á Vesturgötuna, en ég hugsa að ég hlaupi bara hálfa (11 km) eins og ég skráði mig í, þar sem hlaupaæfingar voru ekki alveg sem skildi í sumarfríinu....8| Hljóp þó töluvert, en ekki nóg til að tækla 24 km. Ætla hins vegar að hlaupa hálft maraþon í Glitnis-maraþoni í Borg óttans þann 18. ágúst, ætti að vera komin vel í gírinn þá, vona það.

Until next time:haha:

Aldan


» 3 hafa sagt sína skoðun

01.06.2007 08:54:18 / norma

Grobbrétturinn!!

Jamm, fyrir þá sem þekkja mig, þá er augljóst að þegar ég vinn mér inn grobbréttinn þá nota ég hann.

Konan fór sem sagt á Patró í gær að keppa í Skútuhlaupi. Eini aðkomutitturinn, enda fannst fólki greinilega skrítið að e-h skyldi keyra 260 km til að hlaupa 5 km spotta. Hinsvegar langaði mig að sjá hvernig ég virkaði í svona keppni og skellti mér!!

OG VITI MENN, ég virka í svona keppni, því ég rúllaði upp keppni kvenna 15 ára og eldri, 5 km ( ekki lengri leið í boði sko...hehe)

hljóp sem sagt 5 km á sléttum 25 mínútum og er bara alvega svakalega ánægð með það:D

Varð að deila þessu með ykkur elskurnar, á leið í Ólafsfjörð í dag til að eyða sjómannadagshelginni þar. Vinn 2 daga í næstu viku og svo sumarfrí......út júní.Yndislegt8)8)

Jæja, nenni ekki meira, búin að grobba.

Yfir og út


» 4 hafa sagt sína skoðun

16.05.2007 08:09:56 / norma

Vorið og Víkingasveitin!!

 

Jamm, varð að koma þessu að með vorið, er ekki alveg að skilja hvað klikkaði, en ég hef mætt hérna í hálfum buxum dag eftir dag til að þvinga fram sumarið, eða að minnsta kosti vorið, en hef ekkert grætt á því nema bláan lit á fæturna og hornös...:S

Ætla þó ekki að gefast upp, þrátt fyrir að vera komin með Víkingana á inniæfingar að nýju, enda droppuðu þær eins og flugur í flensu og vesen við þessar tilraunir okkar til útiveru.

Á morgun, fimmtudag kl 13.00 (sharp, stelpur, allar að mæta), ætlum við Víkingasveitin að afhenda hlaupabrettin formlega í íþróttahúsinu á Þingeyri, enda ekki á hverjum degi sem slíkir gripir eru gefnir af litlum áhugamannahóp (með dyggri hjálp einsktaklinga og fyrirtækja í Ísafjarðarbæ) eins og okkar.

Næsta tæki sem við ætlum að kaupa og eigum orðið nokkrar krónur uppí er svo stigvél ( ekki stÍgvél), en slíkt tæki er hrikalega áhrifaríkt ef maður vill ná sér í fallega lagaðann afturenda, og hver vill það ekki, mar spyr sig. :!::!:

Skellti mér svo í alvöru fitumælingu hjá alvöru þjálfara í gær og fékk frábærar fréttir, þ.e konan á hraðri niðurleið hvað það varðar og skilst að svona tala sé ekki mjög algeng hjá KONUM Á MÍNUM ALDRI........;);)...enda eins og ég hef alltaf sagt, þá er aldur afstæður. Maður verður bara fallegri, betri, skemmtilegri, unglegri, hraustari, hressari og eldri með aldrinum, ekkert annað og ekkert til að röfla yfir eða hafa áhyggjur af:klikk:

Sjáumst á morgun, Víkingasveit.

Tata, Svipan


» 5 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 8