Hef bara ekki gefið mér tíma til að blogga hérna
leeeennnngi...en ég var í sumarfríi og nóg að gera síðan, svo sem
eins og alltaf. Höfuðverkurinn fram undan að ná af sér kílóunum sem
laumuðu sér á í sumarfríinu, en þeim er semsagt sagt stríð á
hendur, báðum

Fór í útskriftarferð með Bifrestingum, fámennt en góðmennt, og
alveg hrikalega gaman. Fórum í siglingu í Karabíska með stærsta
liner sem siglir í dag, Liberty of the seas. Mögnuð ferð, fórum í
land í fjórum löndum, þar sem konan skellti sér á Sjókött
(jetski), fjórhjól og í köfun. Algjörlega magnað að kafa, en
staðurinn sem við köfuðum á heitir Paradísarrif og er talinn þriðji
fallegasti köfunarstaður í heimi, og viti menn, ég trúi þvi bara
alveg. Konan fór niður á 40 fet (13-14 metra dýpi) og líkaði bara
vel.
Kom náttlega heim sólbrún og sælleg, afslöppuð sem aldrei fyrr
og í góðum gír fyrir það sem koma skal.
Nú er stefnan tekið á Vesturgötuna, en ég hugsa að ég hlaupi
bara hálfa (11 km) eins og ég skráði mig í, þar sem
hlaupaæfingar voru ekki alveg sem skildi í sumarfríinu....
Hljóp
þó töluvert, en ekki nóg til að tækla 24 km. Ætla hins vegar að
hlaupa hálft maraþon í Glitnis-maraþoni í Borg óttans þann 18.
ágúst, ætti að vera komin vel í gírinn þá, vona það.
Until next time
Aldan